






Hefst: 14. september
Tími: Mánudaga · kl. 14:50-15:50 - 15.50-16.50 - 16:50-17:50
Staðsetning: Flataskóli
Lengd: 11 vikur
Kennslustundir: 12 klukkustundir
Aldur: 7-14 ára
Klifið er sem fyrr í samstarfi í við Leynileikhúsið sem mun sjá um leiklistarnámskeið fyrir 2.-8 (2.-3./4.-6. /6.-8.) bekkí Garðabæ. Námskeiðin fara fram í hátíðarsal Flataskóla.
Námskeiðin eru 11 vikna löng, ein klukkustund í senn. Önnin endar svo í leikhúsi þar sem afrakstur vinnunnar er sýndur. Ungu leikararnir fá búning og leikhúsförðun og aðstandendur geta komið og séð krakkana blómstra á sviðinu.
Öll leiklistarnámskeið Leynileikhússins byggjast fyrst og fremst upp á LEIKGLEÐI og frumsköpun. Með leikgleðina að leiðarljósi fara nemendur í grunnatriði í leiklist með hjálp leikja og æfinga. Lögð er áhersla á einbeitingu, að gefa skýr skilaboð, hlustun, samvinnu, uppbyggingu stuttra leikrita og persónusköpun.
Þegar líða tekur á námskeiðið eru þessi grunnatriði færð yfir í spunavinnu sem á endanum skilar sér í lokasýningu sem nemendur sýna fyrir aðstandendur. Lokasýningin er því byggð upp nær alfarið á spuna og sköpunarkrafti nemenda sem kennari aðstoðar við að púsla saman í leikverk og þar fá allir ungu leikararnir að njóta sín á sinn hátt. Það er mikilvægt að hver nemandi þroskist og vaxi á eigin forsendum, byggi upp sjálfstraust og heilbrigða sjálfsmynd og leiklistin er mjög gott tæki til að ná þeim árangri.