Í Klifurhúsinu er að finna stærstu klifuraðstöðu landsins. Þar eru bæði grjótglímuveggir allt að 5 metrum og 7,5 metra línuklifurveggur. Í Klifurhúsinu er boðið upp á margskonar námskeið sem henta breiðum aldurshópi, auk þess sem kennt er yoga. Einnig er fjölbreytt æfingaraðstaða með lóðum.