KVAN

Heimilisfang: 
Hábraut 1a
Kópavogur
Sími: 
519 3040
Netfang: 
kvan@kvan.is

KVAN býður upp á frábær sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-13 ára. Sumarnámskeiðin eru blanda af skemmtun, leikjum, uppbyggjandi æfingum og námskeiðsþáttum KVAN.

Markmið:
Að efla börn til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í þeirra lífi.

Áskoranir:
Börn í dag eru að takast á við ýmsar áskoranir í samskiptum, félagsfærni og vináttu. Hægt er að undirbúa börn undir þessar áskoranir.

Forsendur:
Til að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu. Allir geta verið leiðtogar ef þeir einungis fá tækifæri til þess, ásamt þjálfun og reynslu.

Skipulag:
Námskeiðið er kennt í tvær vikur, alla virka daga, 3 klst. í senn.

Ávinningur:
Að loknu námskeiði hafa börnin fengið þjálfun og fræðslu um samskipta-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Það þýðir til dæmis að þau hafa lært ýmsar aðferðir til að eignast og halda vinum, sem og að takast á við ágreining og neikvæðar athugasemdir. Þau hafa einnig lært um mikilvægi samvinnu og umburðarlyndis, ásamt því að þau hafa lært hvernig þau geta verið jákvæðir leiðtogar í hópnum sínum, fjölskyldu og eigin lífi.

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.

Staðsetning á korti: