Ferðafélag barnanna var stofnað árið 2009 á vegum Ferðafélags Íslands og að fyrirmynd norska ferðafélagsins DNT.
Höfuðmarkmið Ferðafélags barnanna er að hvetja börn og foreldra til útiveru og samveru í náttúru landsins og fá þannig öll börn til að upplifa sanna gleði í náttúrunni og upplifa leyndardóma umhverfisins.
Ferðir Ferðafélags barnanna eru farnar á forsendum barna og sniðnar að þörfum þeirra.
Ferðirnar eru ókeypis fyrir öll börn og fyrir fullorðna félaga Ferðafélags Íslands, en kosta 1.000 kr. fyrir aðra.